Málsnúmer 2014070148Vakta málsnúmer
Erindi í tölvupósti dagsettum 24. júlí 2014 frá Antoni Brynjarssyni þar sem hann f.h. Útgerðarfélags Akureyringa ehf., kt. 500209-0620, sækir um leyfi til niðurrifs á tveimur bröggum á lóðinni nr. 4 við Fiskitanga, matsnúmer 214-9755 og 214-9759.
Jafnframt er óskað eftir breytingu á deiliskipulagi til að heimila niðurrifið.
Fyrir liggur jákvæð umsögn Minjastofnunar dagsett 21. júlí 2014 en mælst er eindregið til þess að upprunalegir hlutar þeirra verði endurnýttir og/eða seldir til endurnýtingar og þannig komið í veg fyrir að þeir glatist.