Kaupangur, Akureyrarapótek - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2015120106

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 568. fundur - 17.12.2015

Erindi dagsett 10. desember 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Akureyrarapóteks ehf., kt. 690610-1320, sækir um breytingar innanhúss í Kaupangi, matshluta 01. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið og bendir á að gera þarf breytingar á eignaskiptasamningi áður en lokaúttekt verður gerð.