Erindi dagsett 22. september 2014 þar sem Friðbert Friðbertsson f.h. Sæluhúsa Akureyri ehf., kt. 591200-3130, sækir um breytingu á deiliskipulagi. Skipulagsnefnd heimilaði umsækjanda þann 15. október 2014 að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi.
Tillagan er dagsett 25. mars 2015 og unnin af Kristni Ragnarssyni arkitekt.
Einnig er lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Innbæjarins. Um er að ræða breytingu á afmörkun svæðisins sem liggur að lóð Sunnutraðar 2. Tillagan er unnin af Loga Má Einarssyni hjá Kollgátu ehf., dagsett 25. mars 2015.
Tvær umsagnir bárust:
1) Minjastofnun Íslands, Sigurður Bergsteinsson, dagsett 30. janúar 2015.
Gömlu kartöflu- og kálgarðar Akureyringa eru austan við núverandi skipulagssvæði. Ólíklegt er að stækkunin til austurs nái að kálgörðunum en ekki er hægt að dæma um það fyrr en snjóa leysir og hægt verður að skoða aðstæður á vettvangi.
2) Norðurorka, dagsett 2. febrúar 2015. Regnvatnslögn liggur um suðurenda svæðisins. Ef færa þarf lögnina greiðir lóðarhafi þann kostnað sem af því hlýst. Lagnir innan svæðisins eru í eigu lóðarhafa.
Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að gera tillögu að breytingu á aðalskipulagi. Einnig heimilar nefndin umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samráði við skipulagsstjóra sem verði unnin í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.