Erindi dagsett 17. apríl 2012 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Andrésar Magnússonar sækir um leyfi til að byggja nýtt anddyri og tröppur við hús sitt að Eiðsvallagötu 3. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Steinmar H. Rögnvaldsson. Innkomnar nýjar teikningar 18. maí 2012 og umsókn um undanþágu frá nýrri byggingareglugerð nr. 112/2012:
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, lið h.
2. Gr. 4.4.4. Gangar og anddyri.
3. Gr. 6.7.2 Algild hönnun.
4. Gr. 13.2.1. til 13.3.3. Varðandi útreikning heildar leiðnitaps, heildarorkuþarfar og hámarks U-gilda byggingarhluta.
Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna erindið skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.