Stefnumótun ÍRA

Málsnúmer 2007120016

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 82. fundur - 11.11.2010

Lögð fram til kynningar drög að íþróttastefnu Akureyrarbæjar sem samþykkt voru á fundi íþróttaráðs 11. maí 2010.

Íþróttaráð leggur til smávægilegar breytingar á íþróttastefnunni og óskar eftir að hún verði tekin til afgreiðslu í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn - 3299. fundur - 01.03.2011

Tekin fyrir íþróttastefna Akureyrarkaupstaðar sem íþróttaráð lagði til á fundi sínum þann 11. nóvember sl. að óska eftir að yrði tekin fyrir í bæjarstjórn.

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri lagði fram tillögu um breytingu á 4. málsgrein undir yfirliðnum Leiðir á bls. 3 og orðist hún svo:

- að skipulagsdeild gefi út og uppfæri reglulega kort af Akureyri og nágrenni, Grímsey og Hrísey þar sem göngu-, hjóla- og reiðstígar eru merktir.

Breytingartillagan var borin upp og samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða íþróttastefnu Akureyrarkaupstaðar með framangreindri breytingu með 11 samhljóða atkvæðum.