Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

1006. fundur 27. febrúar 2025 kl. 12:30 - 13:10 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Tryggvabraut 10 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 1

Málsnúmer 2025021069Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. febrúar 2025 þar sem Andri Martin Sigurðsson f.h. Hölds ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss og breyttri notkun á húsi nr. 10 við Tryggvabraut. Innkomin gögn eftir Andra Martin Sigurðsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Engimýri 10 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer 2022060307Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. febrúar 2025 þar sem Þórir Guðmundsson f.h. Karls Vinther sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum á þegar samþykktum aðaluppdráttum af breytingum í kjallara á húsi nr. 10 við Engimýri. Innkomin gögn eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Skipagata 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 1

Málsnúmer 2025021176Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. febrúar 2025 þar sem Kári Magnússon f.h. Grand ehf sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss á húsi nr. 5 við Skipagötu. Innkomin gögn eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Hafnarstræti 104 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 1

Málsnúmer 2025020248Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. febrúar 2025 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. H 104 ehf sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss á húsi nr. 104 við Hafnarstræti. Innkomin uppfærð gögn 24. febrúar 2025 eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Hafnarstræti 16 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023020889Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. febrúar 2025 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Akureyrarbæjar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum á þegar samþykktum aðaluppdráttum af húsi nr. 16 við Hafnarstræti. Innkomin gögn eftir Ágúst Hafsteinsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:10.