Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

989. fundur 17. október 2024 kl. 13:00 - 13:15 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Hlíðarfjallsvegur - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

Málsnúmer 2024030563Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. mars 2024 þar sem Terra umhverfisþjónusta hf. tilkynnir um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi. Framkvæmdirnar fela í sér breytingar á innvegg við umhleðsluhús á stöðinni við Hlíðarfjallsveg. Innkomin gögn eftir Eflu verkfræðistofu.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Aðalstræti 13 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 1

Málsnúmer 2024100467Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. október 2024 þar sem Þórir Guðmundsson f.h. Stefáns Þórs Gestssonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir bílgeymslu á lóð nr. 13 við Aðalstræti. Innkomin gögn eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

3.Þursaholt 5, 7 og 9 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022060362Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. júní 2022 þar sem SS Byggir ehf. sækir breytingar á áður samþykktum teikningum af fjölbýlishúsi á lóð nr. 5 við Þursaholt. Meðfylgjandi eru teikningar dagsettar 15. október 2024 eftir Ásdísi Helgu Ágústsdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Gránufélagsgata 51 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021041271Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. október 2024 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd VN Fasteigna ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi á lóð nr. 51 við Gránufélagsgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 13:15.