Málsnúmer 2019110088Vakta málsnúmer
Erindi dagsett 20. desember 2019 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd EF1 hf., kt. 681113-0960, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum með að sameina útleigurými 23 og 34-36 með milliloftum yfir útleigurými 38, 39 og 40 og minnkun á rými 37. Að auki stækkun á verslun fram á verslunargötu til norðurs í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur. Innkomnar nýjar teikningar 7. febrúar 2020.
Jafnframt er sótt um frest til skila á uppfærðri brunahönnun til 31. mars 2020.