Viltu hafa áhrif? Taktu þátt í gerð nýrrar sóknaráætlunar

Vinna er hafin við gerð nýrrar Sóknaráætlunar Norðurlands eystra sem mun taka gildi um áramót, en gildandi áætlun gildir út árið 2024.

Vilt þú hafa áhrif á nýja áætlun? Taktu þá þátt í vinnustofum sem er ætlað að móta áherslur til framtíðar.

Opnað hefur verið fyrir skráningu sem fer fram hér. Á vinnustofunum verður fjallað um þrjá málaflokka Sóknaráætlunar Norðurlands eystra 2025-2030: Atvinnulíf, blómlegar byggðir og umhverfismál. Á vinnustofunum verður safnað saman verkefnahugmyndum fyrir næsta fimm ára tímabil. Ef þú kemst ekki á vinnustofu vegna nýrrar Sóknaráætlunar en ert með verkefnahugmynd þá má deila henni hérna.

SSNE vinnur nýja Sóknaráætlun fyrir Norðurland eystra í samráði við íbúa landshlutans. Haldnar verða 13 vinnustofur víðsvegar um landshlutann í ágúst og september.

Vinnastofan á Akureyri verður haldin í Brekkuskóla 10. september kl. 16-18.

Látum að okkur kveða!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan