Ný vefmyndavél hefur nú verið sett upp á heimasíður Akureyrarbæjar, Akureyri.is og Halloakureyri.is.
Gamla vélin var komin mjög til ára sinna en ný vél hefur verið sett upp með streymi í gegnum Youtube og því gæti fólk þurft að hreinsa út bókamerki ef það hefur vistað slóð vélarinnar niður í tölvuna hjá sér.
Vitað er að fjölmargir unnendur Akureyrar, til að mynda brottfluttir og útlendingar sem hafa á bænum miklar mætur, fylgjast grannt með fallega bænum okkar, veðri og vindum, í gegnum vefmyndavélina því kvartanir berast óðara ef streymið dettur niður.
Nýja vélin mun vonandi þjóna hlutverki sínu vel og lengi en sem áður segir er hægt að komast inn á hana í gegnum hnapp efst hægra megin á Akureyri.is og einnig á Halloakureyri.is. Slóðin beint á Youtube er annars þessi: https://www.youtube.com/watch?v=cSZwFLnw2a8.