Tina Møller er farkennari í grunnskólum bæjarins

Talið frá vinstri. Aðalheiður Bragadóttir deildarstjóri Brekkuskóla, Michael Dal dósent við Menntaví…
Talið frá vinstri. Aðalheiður Bragadóttir deildarstjóri Brekkuskóla, Michael Dal dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Tina Møller farkennari og Guðrún Gyða Franklín hjá Nýmennt á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.

Á vordögum gerði fræðslu- og lýðheilsusvið Akureyrarbæjar samning við Menntavísindasvið Háskóla Íslands vegna starfa og dvalar dansks farkennara að nafni Tina Møller á Akureyri yfir skólaárið 2024-2025. Um er að ræða danskt-íslenskt samstarfsverkefni en bæði danska- og íslenska menntamálaráðuneytið koma að því að styrkja þetta verkefni.

Eitt af meginmarkmiðum þessa samstarfs er að styðja við og efla dönskukennslu í grunnskólum Akureyrarbæjar. Lögð verður sérstök áhersla á að auka munnlega færni nemenda í dönsku, kynna danska menningu fyrir nemendum og skoða mismunandi kennsluaðferðir í samvinnu við dönskukennara.

Verkefni sem þetta er ekki nýtt af nálinni en Akureyrarbær hefur tekið á móti dönskum farkennurum í mörg ár sem vakið hefur ánægju bæði nemenda og kennara. Mikill ávinningur felst í svona heimsóknum þar sem dönskukennarar skólanna fá meðal annars stuðning við að þróa starf sitt í samvinnu við farkennarann og nemendur fá tækifæri til að komast betur í kynni við danska menningu.

Tina hóf störf í Brekkuskóla 1. september en áætlað er að hún fari í átta grunnskóla Akureyrarbæjar á meðan á dvöl hennar stendur.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan