Þakkað fyrir gott Listasumar 2024 með Karnivala

Mikil og góð stemning var í Listagilinu síðasta laugardag þegar þar var haldið hið svokallaða Karnivala eða lokahátíð Listasumars 2024.

Meðal þess sem boðið var upp á var að lúðrasveit lék nokkur lög, Anna Richards framdi gjörning, boðið var upp á andlitsmálningu, lista- og handverksmarkað og candy floss.

Það voru starfandi listamenn í Listagilinu sem stóðu að Karnivala frá kl. 14-17.

Klukkan 17 var síðan boðið upp á ókeypis tónleika í tónleikaröðinni Mysingur portinu á bak við Listasafnið. Þar komu fram tónlistarkonan REA frá Sviss og Henrik Björnsson í eins manns hljómsveitinni The Cult Of One.

Allir skemmtu sér hið besta og þakka fyrir gott Listasumar 2024.

Meðfylgjandi myndir tók Brynhildur Kristinsdóttir og Almar Alfreðsson.

Smellið á myndirnar til að sjá stærri útgáfur og fletta á milli þeirra.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan