Akureyrarbær vinnur nú að umferðaröryggisáætlun fyrir sveitarfélagið.
Akureyrarbær vinnur nú að umferðaröryggisáætlun fyrir sveitarfélagið. Markmið hennar að búa til aðgerðaráætlun svo auka megi öryggi í bænum, fækka slysum og auka lífsgæði bæjarbúa sem og annarra sem um bæinn ferðast.
Mikilvægur grundvöllur vinnunnar er að kortleggja hætturnar í umferðinni. Kortlagningin hættustaða mun ekki bara byggja á hvar slysin hafa átt sér stað heldur einnig taka mið af mikilvægri upplifun íbúa á varasömum stöðum og mögulegum hindrunum í gatna- og stígakerfinu.
Því hefur sveitarfélagið ákveðið að efna til stafræns íbúasamráðs þar sem öllum íbúum gefst tækifæri á að koma sínum ábendingum áleiðis. Við viljum fá ábendingar ykkar varðandi hættustaði sem þið upplifið í umferðinni ásamt kortlagningu á staðsetningu þeirra.
Sérstök ábendingagátt verður opin til 4. desember nk. í gegnum eftirfarandi hlekk https://arcg.is/1OWrOe1.
Láttu í þér heyra því þú þekkir þitt nærumhverfi best!