Myndin er tekin af vef Hlíðarskóla.
Eins og víða annars staðar í bænum héldu nemendur og starfsfólk Hlíðarskóla upp á hrekkjavökuna með pompi og prakt.
Starfsfólk skólans setti upp draugahús í kjallara Skjaldarvíkurhótelsins, þar sem nemendur gengu um við hrollvekjandi hljóðskrá sem Bjarki tónlistarkennari útbjó. Sumum þótti nógu ógnvænlegt að fara inn í þetta stóra hús, sem stendur autt á skólalóðinni, en aðrir voru kokhraustir og sögðu að þeim hefði ekkert brugðið.
Óhætt er að segja að draugahúsið hafi slegið í gegn, og allir skemmt sér vel – jafnt starfsfólk sem nemendur.