Röskun á dreifingu rafmagns aðfaranótt föstudags

Svæðið á Brekkunni sem um ræðir.
Svæðið á Brekkunni sem um ræðir.

Hluti Brekkunnar verður án rafmagns aðfaranótt föstudags vegna vinnu við dreifikerfi Norðurorku eða frá kl. 23 fimmtudaginn 25. janúar til kl. 6 á föstudagsmorgun eða meðan á vinnu stendur.

Umferðarljós á gatnamótum Þingvallastrætis og Dalsbrautar detta út við þetta og einnig gangbrautarljós við Dalsbraut. Þegar rafmagni verður hleypt á aftur er hætt við að götuljósin komist ekki samstundis í samt lag en fylgst verður náið með því að þau virki sem skyldi.

Bílstjórar og aðrir vegfarendur eru beðnir að sýna sérstaka aðgát í umferðinni á þessu svæði á föstudagsmorgun ef umferðarljós verða ekki komin í samt lag.

Á heimasíðu Norðurorku, no.is, er að finna góð ráð við rafmangsrofi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan