Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra og er umsóknarfrestur til 16. október kl. 12.
Veittir eru styrkir í eftirfarandi þremur flokkum:
- Verkefnastyrkir á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar
- Verkefnastyrkir á sviði menningar
- Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar
Nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð má finna hér.
Þann 18. september kl. 16.15 verður haldinn rafræn kynningarfundur fyrir umsækjendur þar sem meðal annars verður farið yfir úthlutunarreglur sjóðsins. Skráning á fundinn fer fram hér.