Akureyrarbær auglýsir lausar til úthlutunar par- og raðhúsalóðar í Holtahverfi, á svæði milli Krossanesbrautar og smábátahafnarinnar í Sandgerðisbót. Um er að ræða flottar lóðir á svæði þar sem uppbygging er hafin og eru allar lóðirnar byggingarhæfar.
Skila þarf inn umsóknum í lóðirnar í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 5. júní nk. Er gert ráð fyrir að umsóknir verði teknar fyrir í skipulagsráði viku síðar þann 12. júní 2024.
Hér má nálgast nánari upplýsingar um lóðirnar