Opið fyrir umsóknir um styrki vegna Barnamenningarhátíðar 2025

Frá viðburði á Listasafninu á Akureyri á Barnamenningarhátíð 2023
Frá viðburði á Listasafninu á Akureyri á Barnamenningarhátíð 2023

Barnamenningarhátíð á Akureyri verður haldin í áttunda sinn í apríl 2025. Hægt er að sækja um styrki vegna verkefna eða viðburða sem tengjast hátíðinni og er umsóknarfrestur til og með 1. desember 2024.

Sérstök áhersla verður á viðburði sem ýta undir samverustundir fjölskyldna.

Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar á akureyri.is. Athugið að einungis er hægt að opna umsóknina með rafrænum skilríkjum. Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér vel verklagsreglur um stuðning Akureyrarbæjar við viðburði á Barnamenningarhátíð á Akureyri sem er að finna HÉR.

Nánari upplýsingar um Barnamenningarhátíð á Akureyri 2024 á má nálgast HÉR.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan