Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030.
Breytingin á við um reit sem merktur er ÍB23 á gildandi aðalskipulagi og nær til svæðis sem skilgreint er sem íbúðabyggð vestan Borgarbrautar og norðan Síðubrautar. Í breytingunni felst að þéttleiki íbúðabyggðar verður 25-30 íbúðir á ha í stað 26 íbúða á ha áður og viðmið fyrir skiptingu íbúða verður fjölbýli 60-80% og sérbýli (einbýlis-, par- og raðhús) 20-40 % í stað 40% fjölbýla, 40% par- og raðhúsa og 20% einbýlishúsa áður.
Breytingin felur jafnframt í sér að áætlaður íbúðafjöldi á svæðinu eykst úr 1340 íbúðum í 1800-2000 íbúðir. Þá mun Síðubraut verða framlengd um 300 m til suðvesturs og aðveitulögn vatnsveitu hliðrað ásamt því að útivistarleið ofan svæðisins hliðrast lítillega. Afmörkun svæðisins breytist óverulega en stærð þess helst óbreytt. Skipulagstillöguna má nálgast hér.
Samhliða auglýsingu aðalskipulagsbreytingar er auglýst tillaga að deiliskipulagi Móahverfis skv. 41. gr. skipulagslaga.
Deiliskipulagstillagan á við um hluta þess svæðis sem merkt er ÍB23 á aðalskipulagi. Svæðið er um 45 ha og afmarkast af lóðamörkum við Urðargil, Vestursíðu og Borgarsíðu í austri, framhaldi af Síðubraut í norðvestri og af 100 m hæðarlínu í suðvestri.
Tillagan gerir ráð fyrir að svæðið byggist upp sem íbúðabyggð með blöndu af fjölbýlis- og sérbýlishúsum ásamt íþróttasvæði og matjurtagörðum. Gert er ráð fyrir allt að 1100 íbúðum í hverfinu. Skipulagstillöguna má nálgast hér:
- Deiliskipulagsuppdráttur
- Greinargerð
Þau sem þess óska geta kynnt sér tillögurnar og gert við þær athugasemdir. Tillöguuppdrætti og greinargerðir má nálgast hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrar frá 9. mars til 25. apríl 2022.
Hægt er að skila inn athugasemdum og ábendingum um skipulagstillögurnar á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis á skipulagsdeild, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til og með 25. apríl 2022.
Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.