Ljósin tendruð á jólatrénu í Hrísey

Ljósin verða tendruð á jólatrénu í Hrísey á morgun, sjálfan fullveldisdaginn 1. desember, kl. 16.

Gengið verður í kringum jólatréð og gömlu góðu jólalögin rifjuð upp.

Loks bjóða Ferðamálafélagið og Hríseyjarbúðin öllum í kíkja í búðina og þiggja heitt súkkulaði og smákökur.

Verið öll velkomin.

Ýmsir aðrir viðburðir eru á döfinni í Hrísey á aðventunni og má finna allar upplýsingar um þá á hrisey.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan