Langtímaleigusvæði fyrir söluvagna í miðbæ Akureyrar 2025

Við Ráðhústorg er eitt stæði fyrir söluvagn
Við Ráðhústorg er eitt stæði fyrir söluvagn

Í samþykkt Akureyrarbæjar um götu- og torgsölu eru afmörkuð svæði í miðbæ þar sem heimiluð er sölustarfsemi utandyra. Í samræmi við samþykktina er hér með auglýst eftir umsóknum um langtímaleigusvæði fyrir söluvagna í miðbæ Akureyrar fyrir árið 2025.

Um er að ræða þrjú stæði fyrir söluvagna á tveimur svæðum. Forleiguréttur er í gildi fyrir umrædd svæði og hefur umsækjandi sem hefur haft leyfi frá fyrra ári forgang umfram aðra. Umsækjandi skal vera skuldlaus við Akureyrarbæ og skal hafa virt lögreglusamþykkt Akureyrarbæjar og samþykkt þessa við endurumsókn, að öðrum kosti fellur forleigurétturinn niður. Útgefin leyfi gilda í 12 mánuði.

Umsækjendur skulu kynna sér samþykkt um götu- og torgsölu og fylgiskjöl hér og skila inn umsókn í gegnum þjónustugáttina ásamt tilskyldum gögnum fyrir 6. desember 2024.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan