Jólatorgið opið um helgina og á Þorláksmessu

Velkomin á Jólatorgið á Ráðhústorgi.
Velkomin á Jólatorgið á Ráðhústorgi.

Opnunartími Jólatorgsins á Ráðhústorgi hefur verið framlengdur!

Komdu og njóttu sannkallaðrar jólastemningar í hjarta miðbæjarins. Jólatorgið verður opið laugardag og sunnudag frá kl. 14-17, og á Þorláksmessu frá kl. 18-22.

Í fallega skreyttum jólahúsum verður boðið upp á fjölbreyttan hátíðarvarning, og skemmtileg dagskrá mun gleðja gesti á öllum aldri. Hér er brot af því sem verður að gerast í miðbænum þessa síðustu daga fyrir jól. 

Dagskrá laugardaginn 21. desember:

  • Kl. 14.00: Söluaðilar eru með jólalegan varning í skreyttum jólahúsum. 
  • Kl. 14.00: Jólalegur sölublás fyrir utan Vamos. 
  • Kl. 14.30: Hvolpasveitin kemur í heimsókn á Jólatorgið.
  • Kl. 15.00: Kirkjukór Akureyrarkirkju syngur við verslunina Centro.
  • Kl. 15.30: Jólasveinarnir mæta í Pennann.

Dagskrá sunnudaginn 22. desember:

  • Kl. 14.00: Söluaðilar eru með jólalegan varning í skreyttum jólahúsum.
  • Kl. 14.30: Hvolpasveitin mætir aftur.
  • Kl. 15.15: Jólasveinarnir heimsækja Jólatorgið.
  • Kl. 16.00: Kirkjutröppurnar við Akureyrarkirkju opnaðar.

Dagskrá Þorláksmessu:

  • Kl. 18.00-22.00: Söluaðilar eru með jólalegan varning í skreyttum jólahúsum.
  • Kl. 20.30-20.55: Tónlistarmennirnir Villi og Dandri flytja nokkur lög.
  • Kl. 21.00-21.20: Kirkjukór Akureyrarkirkju skapa hátíðlega stemningu. 

Allar upplýsingar um Jólatorgið má finna á www.jolatorg.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan