Mynd: Dagný Reykjalín/Blek.
Akureyrarbær efnir til hverfafunda í öllum skólahverfum bæjarins. Tveir fundir verða haldnir í maí og þráðurinn síðan tekinn upp aftur næsta haust.
Fyrsti fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 22. maí kl. 17 í Brekkuskóla og annar í Síðuskóla fimmtudaginn 23. maí kl. 17. Gert er ráð fyrir að hver fundur taki um klukkustund.
Á fundunum verður lagt upp með tvær meginspurningar:
- Hvað er gott við hverfið þitt?
- Hvað má bæta í hverfinu?
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, opnar hvern fund með stuttu ávarpi en síðan brjóta íbúar umrædds hverfis spurningarnar tvær til mergjar.
Bæjarfulltrúar verða í salnum og hafa það hlutverk að skrifa niður þær hugmyndir, umkvartanir, lof og last, sem fram koma í umræðuhópum íbúanna. Megináhersla verður lögð á að samtalið fari fram á forsendum bæjarbúa.
Niðurstöðum fundanna, ábendingum og hugmyndum, verður komið í réttan farveg og á framfæri við stjórnendur sveitarfélagsins og pólitískt kjörna fulltrúa til frekari úrvinnslu.
Á hverjum fundi verður einblínt á nærumhverfið með íbúum hvers hverfis en að sjálfsögðu eru öll velkomin á alla fundina.
Hverfafundir verða haldnir í öllum öðrum grunnskólum bæjarins og stefnt er að því að sú yfirferð klárist haustið 2024.
Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar.