Hönnun í Listasafninu

Ungir hönnuðir í Listasafninu á Akureyri. Ljósmynd: Almar Alfreðsson.
Ungir hönnuðir í Listasafninu á Akureyri. Ljósmynd: Almar Alfreðsson.

Fyrir stuttu fór fram önnur listvinnustofa verkefnisins Allt til enda - Listvinnustofur barna árið 2023 í Listasafninu á Akureyri. Friðrik Steinn Friðriksson, vöru- og upplifunarhönnuður, bauð ungmennum á aldrinum 12 til 15 ára upp á spennandi hönnuarvinnustofu. Þar fengu þau að skapa módel af húsgögnum sem bæði er lítil útgáfa af venjulegum hlutum og skref í átt að því að smíða í fullri stærð. Unnið var í skalanum 1:2 og efni sem auðvelt er að yfirfæra og stuðst við fagurfræði Enzo Mari og Rietveld.

Ungmennin tóku virkan þátt í öllu ferlinu, allt frá því að leita sér innblásturs, skapa verkin í samstarfi við Friðrik Stein og sýna afraksturinn á sérstakri sýningu sem Hlynur Hallsson safnstjóri opnaði formlega í safnfræðslurými Listasafnsins. Sýningin stendur til 17. desember 2023.

Verkefnið Allt til enda - Listvinnustofur barna hófst árið 2021 en þar fá börn á grunnskólaaldri tækifæri til að láta ljós sitt skína á sinni eigin sýningu sem þau undirbúa frá upphafi til enda. Hönnunarvinnustofan með Friðriki Steini er áttunda listvinnustofan í verkefninu. Verkefnið í ár er styrkt af Safnasjóði og Akureyrarbæ. Verkefnastjóri er Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi.

Ein listvinnustofa er eftir að þessu sinni en hún verður í janúar 2024. Hún er fyrir 1.-4. bekk grunnskóla og verður nánar auglýst síðar.

Þátttakendur listvinnustofunnar:

  • Elínborg Una Árnadóttir
  • Emil Halldórsson
  • Freyja Wyrwich
  • Fríða Harðardóttir
  • Magnús Emil Skúlason
  • Númi Kristínarson
  • Sigurður Hólmgrímsson
  • Stefanía Hólm Skjaldardóttir

Smellið á myndirnar að neðan til að sjá stærri útgáfur og fletta á milli þeirra.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan