Göngugatan er nú opin fyrir umferð vélknúinna ökutækja

Göngugatan á Akureyri. Mynd: María Helena Tryggvadóttir.
Göngugatan á Akureyri. Mynd: María Helena Tryggvadóttir.

Nú hefur göngugatan verið opnuð á ný fyrir umferð vélknúinna ökutækja.

Í sumar hefur verið lokað fyrir umferð vélknúinna ökutækja í göngugötunni alla daga, allan sólarhringinn, frá 3. júní og út ágúst. Þó var aðgengi tryggt fyrir P-merkta bíla og ökutæki viðbragðsaðila en fyrir aðföng rekstraraðila á milli 07:00 og 10:00 alla daga.

Verkefnið átti að auka öryggi gangandi vegfarenda, eiga þátt í því að efla bæjarbrag og virka hvetjandi fyrir íbúa og gesti til að ganga og njóta útiveru yfir sumartímann.

Málið var til umræðu og afgreitt á fundi bæjarstjórnar 6. júní 2023 þar sem tillagan var samþykkt samhljóða með 11 greiddum atkvæðum. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan