Gjaldfrjáls leikskóli dregur úr álagi og bætir líðan barna

Gjaldfrjáls leikskóli hefur reynst áhrifarík leið til að draga úr álagi í leikskólum, á skólastjórnendur og starfsfólk og hefur jákvæð áhrif á börnin. Þetta kemur fram í rannsókn sem óháðir rannsóknaraðilar, Anna Elísa Hreiðarsdóttir, lektor við HA, og Svava Björg Mörk, lektor við HÍ, framkvæmdu á starfsumhverfi leikskóla hjá Akureyrarbæ eftir gjaldskrárbreytingar. Breytingarnar, sem fela í sér gjaldfrjálsan sex tíma leikskóla á skólatímanum frá kl. 8-14 og tekjutengdan afslátt af skólagjöldum utan þess tíma, tóku gildi 1. janúar 2024.
 
Í rannsókninni kemur fram að rúmlega 80% stjórnenda og yfir 74% starfsfólks upplifa breytingarnar jákvæðar. „Af samtölum okkar við stjórnendur mátti greina að ákveðin bugun var komin í hópinn; fólk var orðið uppgefið, bæði líkamlega og andlega. Álagið hafði verið mikið, sem birtist meðal annars í mikilli starfsmannaveltu og nýliðaþjálfun. Stjórnendur voru stöðugt að róa lífróður og leið ekki vel. Vinnustyttingin hafði líka verið íþyngjandi, en eftir breytingarnar hefur hún gengið betur upp,“ segir Anna Elísa.
 
Yfir 90% skólastjóra, 83% deildarstjóra og 73% starfsfólks sögðu breytingarnar hafa mikil eða frekar mikil áhrif á börnin. „Starfsfólki í skólunum finnst börnin hafa meiri tíma til að leika sér, meiri tíma til að læra og meiri tíma með kennurunum. Starfsfólkið upplifir að börnunum líður betur, enda er minna áreiti þegar fækkar í rýminu og skipulagið er betur rammað,“ segja þær Anna Elísa og Svava Björg.
 
Rannsóknin náði líka til Kópavogsbæjar, sem gerði svipaðar breytingar. Markmið rannsakenda var að skoða hvernig sveitarfélögunum tveimur hefur gengið að ná þeim markmiðum sem stefnt var að. Gagnaöflum fór fram á síðasta skólamisseri og fólst í rýniviðtölum við skólastjórnendur ásamt spurningalistum til skólastjórnenda, deildarstjóra og starfsfólks sem starfar með börnum.
Unnið var að því að fá foreldra í rýniviðtöl, bæði í gegnum foreldraráð og foreldrafélög skóla, en illa gekk að fá þátttakendur, og fá mættu í þau viðtöl sem boðið var upp á.
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan