Foreldarar á Akureyri hafa útbúið lista þar sem þau sem vilja taka á móti börnunum merkja sig. Hægt er að sjá listann í hópnum Hrekkjavaka á Akureyri á Facebook.
Á Hrekkjavöku hefur skapast sú hefð að alls kyns furðuverur ganga í hús og sníkja nammi.
Foreldarar á Akureyri hafa útbúið lista þar sem þau sem vilja taka á móti börnunum merkja sig. Hægt er að sjá listann í hópnum Hrekkjavaka á Akureyri á Facebook.
Bæjarbúar mega búast við draugum og öðrum kynjaskepnum á ferð í myrkrinu í kvöld. Það er því ekki úr vegi að minna ökumenn á að fara varlega í umferðinni.
Munum eftir umferðarreglunum og notum endurskinsmerki svo börnin sjáist og komi heil heim.
Ýmsar gagnlegar upplýsingar um endurskinsmerki og notkun þeirra er að finna hér.