Friðarbylgja send frá Hofi kl. 16.15 í dag

Mynd: Auðunn Níelsson.
Mynd: Auðunn Níelsson.

Dagana 31. ágúst - 2. september er haldið umdæmisþing Alþjóðasamtaka Zonta í Hofi. Þema þingsins hverfist um það hvernig konur geti orðið í farabroddi að sjálfbærri framtíð.

Zontasamtökin eru alþjóðleg hreyfing kvenna sem vinnur að því að bæta stöðu kvenna og stúlkna og stuðla að jafnrétti í heiminum, þar sem mannréttindi og frelsi kvenna er tryggt og konum í engu mismunað kyns síns vegna, hvorki í lagalegu né stjórnmálalegu tilliti eða hvað varðar menntun, heilbrigði og starfsréttindi. Starf Zontasamtakanna fellur undir 5. heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem snýr að því að tryggja jafnrétti kynjanna og valdeflingu allra kvenna og stúlkna. Á tólfta hundrað Zontaklúbbar eru starfandi í heiminum í yfir 60 löndum. Á Íslandi eru starfandi sex Zontaklúbbar en hitinn og þunginn af skipulagi þingsins er hjá Zontaklúbbunum tveimur á Akureyri, Zontaklúbbi Akureyrar og Zontaklúbbnum Þórunni hyrnu.

Á þinginu koma saman Zontakonur frá Íslandi, Danmörku, Litháen og Noregi en klúbbar þessara landa mynda saman 13. umdæmi Zontasamtakanna.

Sem hluti af dagskránni verður táknrænn viðburður í dag, föstudaginn 1. september kl. 16.15, þegar friðarbylgja verður send frá Hofi með skilaboðum frá Zontasamtökunum sem segja NEI við stríði og átökum. Allir velkomnir til að taka höndum saman með Zontakonum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan