Það er stundum kuldalegt á aðventunni en ávallt fallegt á Akureyri. Mynd: María Helena Tryggvadóttir.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árin 2025-2028 var samþykkt í bæjarstjórn í gær, 3. desember. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar árið 2025 er áætluð jákvæð um tæplega 1,5 milljarð króna. Gert er ráð fyrir stighækkandi rekstrarafgangi á árunum 2026-2028 og að niðurstaðan árið 2028 verði tæplega 2,1 milljarður. Eignir eru áætlaðar samtals 73,7 milljarðar króna í árslok.
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, segist vera ánægð með þá fjárhagsáætlun til næstu ára sem nú hafi verið lögð fram og samþykkt í bæjarstjórn. “Við erum stolt af þeirri vinnu sem hefur farið fram við gerð hennar. Þetta er vel unnin og skýr fjárhagsætlun sem sýnir glögglega fram á traustan fjárhag bæjarins. Þannig að við horfum björtum augum til framtíðar.”
Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og stofnframlög til uppbyggingar leiguíbúða eru áætlaðar rúmir 7 milljarðar á árinu 2025 og samtals 18,6 milljarðar árin 2026-2028. Gatnagerðargjöld, sem færast á móti fjárfestingum í gatnakerfi, eru áætluð einn milljarður króna á ári, öll árin. Áætluð lántaka er 2,5 milljarðar á næsta ári og samtals 7,5 árin 2026-2028.
Áætlað er að rekstrarniðurstaða A-hlutans verði neikvæð um 211 milljónir árið 2025 en nái svo jafnvægi og verði komin 337 milljónir í rekstrarafgang árið 2028. Veltufé frá rekstri er áætlað 2,5 milljarðar króna árið 2025 og fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum að frádregnum gatnagerðargjöldum er áætluð 3,2 milljarðar króna. Ný lántaka í A-hluta er áætluð 1,7 milljaðar króna og handbært fé í árslok er áætlað 1,5 milljarður króna. Á árunum 2026-2028 er nettó fjárfesting áætluð 7,9 milljarðar og ný lántaka áætluð 5,9 milljarðar.
Framkvæmdaáætlun næstu ára er afar metnaðarfull og af helstu fyrirhuguðum framkvæmdum ársins 2025 má nefna nýjan leikskóla í Hagahverfi, áframhaldandi uppbyggingu á KA-velli, nýjan gervigrasvöll á Þórs-svæði og endurbætur á Sundlaug Akureyrar. Gatnaframkvæmdir eru einnig umtalsverðar og má þar nefna uppbyggingu gatna í Móahverfi, endurbyggingu eldri gatna, meðal annars með umferðaröryggismál í huga, og frekari uppbyggingu á stígakerfi í bæjarlandinu. Miklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar hjá Norðurorku á næstu fjórum árum og mest áhersla er lögð á að efla heitavatnskerfið svo tryggja megi öllum nægt heitt vatn. Hafnarsamlag Norðurlands stefnir að því að ljúka umfangsmiklum og brýnum framkvæmdum við Torfunefsbryggju og í næsta nágrenni hennar.
Útsvarsprósenta og álagningaprósenta fasteignaskatts verður óbreytt frá yfirstandandi ári. Útsvar er 14,97%, fasteignaskattsálagning á íbúðarhúsnæði er 0,31% af fasteignamati, 1,32% af opinberu húsnæði og 1,63% af öðru húsnæði.
Gjaldskrárhækkunum er stillt í hóf í samræmi við samkomulag sem gert var í tengslum við kjarasamninga 2024. Gjaldskrár hækka almennt um 3,5% með örfáum undantekningum. Til að mynda er engin breyting á gjaldskrá barna í Hlíðarfjalli og Sundlaugar Akureyrar, gjaldskrá tómstunda í Sölku og Birtu, félagsmiðstöðvum fólksins, Bifreiðastæðasjóðs og leyfisgjöldum fyrir hunda og ketti. Einstaka gjaldskrár hækka meira.
Mikil breyting er á gjaldskrá vegna sorphirðu þar sem innleitt er nýtt kerfi við innheimtu. Fram að þessu hefur jafnhátt sorphirðugjald verið lagt á allar íbúðir óháð kostnaði við hirðingu en eftir breytingarnar tekur gjaldskráin mið af samsetningu sorpíláta við hverja fasteign og kostnaði við hirðingu. Þá mun fólk sem býr í sérbýli yfirleitt greiða hærra gjald en áður enda er kostnaður við hirðingu við sérbýli meiri en við fjölbýli þar sem gjöldin verða lægri. Þá hefur samsetning sorpíláta við heimili og hirðutíðni einnig áhrif á gjaldskrána. Hækkunin nær því fyrst og fremst til sérbýla.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2025-2028
Greinargerð með fjárhagsáætlun 2025-2028
Stofnanir Akureyrarbæjar - gjaldskrár 2025