Fjallagarpurinn Jökull Bergmann

bergmenncomHinn landsþekkti klifrari og fjallaleiðsögumaður Jökull Bergmann hefur sagt kreppunni stríð á hendur og sett í loftið nýja heimasíðu fjallaleiðsögufyrirtækið. Þetta er nýjung í framboði á fjallaferðum á Íslandi þar sem mikil áhersla er lögð á t.d þyrluskíðaferðir á Tröllaskaga.

Á síðunni er að finna afar gott safn ljósmynda og efnis um fjallamennsku hvers konar á Íslandi en þó með sérstakri áherslu á fjallaskíðaferðir, þyrluskíðun, ísklifur og Alpaferðir. Jökull býður upp á magnað úrval ferða á Íslandi sem og sérsniðnar Alpa ferðir fyrir Íslendinga, en hann er eini Íslendingurinn sem hefur starfsréttindi í Evrópsku Ölpunum.

Jökull náði þeim merka áfanga á síðasta ári að verða fyrsti Íslendingurinn til að útskrifast með hina gríðarlega virtu alþjóðlegu UIAGM-IFMGA fjallaleiðsögumanna gráðu. Þetta er árangur yfir tíu ára þrotlausrar þjálfunnar og prófaferlis sem er án efa eitt það erfiðasta í heiminum þar sem aðeins um 10% þeirra sem hefja námið ná að ljúka fullum réttindum. Jökull starfar víðsvegar um heiminn við fjallaleiðsögn allt árið um kring, m.a í Kanada yfir köldustu
vetrarmánuðina í þyrluskíðaleiðsögn, á Íslandi á vorin í fjalla og þyrluskíðaferðum. Jökull hefur einnig um árabil boðið upp á ferðir á Hvannadalshnúk og fleiri fjöll á Íslandi. Alparnir, Afríka, Suður Ameríka og Nepal eru einnig á lista yfir þá staði þar sem Jökull starfar reglubundið.

Slóðin á heimasíðu Jökuls er www.bergmenn.com.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan