Framkvæmdir eru nú hafnar við Torfunefsbryggju þar sem að ætlunin er að stækka bryggjuna og markmiðið er að byggja upp aðlaðandi svæði þar sem að fólk getur komið saman og notið þess að vera í nálægð við hafið. Bryggjan og nærsvæði hennar mun einnig hýsa ýmiskonar þjónustu, líkt og veitingastaði og verslanir. Í vetur verður farið í að reka niður stálþil og stækka bryggjuna en í framhaldinu mun uppbygging á svæðinu fara fram.
Arkitektastofan Arkþing/Nordik bar sigur úr bítum í samkepnni um hönnun svæðisins fyrr á þessu ári og hefur umsjón með hönnuninni. Þegar tilkynnt var um úrslitin var m.a. sagt um tillöguna: Meginatriði vinningstillögu Arkþing/Nordic felst í fjölbreyttum útirýmum sem mótuð eru með sjö byggingum, ólíkum að stærð og formi. Þær mynda húsaröð og aðdraganda að Hofi, en gönguleiðin þangað er endurbætt á áhugaverðan hátt. Þessi nýja byggð myndar fjölbreytta bæjarmynd séð frá Pollinum auk þess sem götumynd Glerárgötu er mótuð m.a. með útrýmum mót vestri. Þjónustuhúsi hafnarinnar er komið fyrir undir settröppum sem snúa að vel mótuðu viðburðatorgi og er gert ráð fyrir tengingu við innirými syðstu húsanna.
Myndbandið að neðan lýsir í megindráttum hugmyndinni að baki hönnun Arkitektastofunnar Arkþing/Nordik.