Dekurdagar verða haldnir á Akureyri 3.-6. október.
Fyrirtæki eru hvött til að taka þátt og gera Dekurdagana eftirminnilega fyrir þau sem koma og njóta. Áhugasömum er bent á að senda upplýsingar um þátttöku á dekurdagar@akureyri.is.
Hægt er að kaupa slaufur á skrifstofu Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, Glerárgötu 34, eða panta þær á dekurdagar@akureyri.is.
Dekurdagar eru viðburður að frumkvæði verslunareiganda á Akureyri til að skapa líf og gleði í bænum í október og sjá fulltrúar þeirra um viðburðinn, með aðstoð Akureyrarbæjar.
Október er alþjóðlegur mánuður brjóstakrabbameins og er víða um heim notaður til að vekja athygli á sjúkdómnum og safna fé til rannsókna á brjóstakrabbameini.
Dekurdagar eru stór styrktaraðili Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis og litur mánaðarins og viðburðarins er bleikur.