Býrðu í Naustahverfi, Hagahverfi eða á Oddeyri?

Hvað er gott við hverfið þitt og hvað mætti betur fara?
Hvað er gott við hverfið þitt og hvað mætti betur fara?

Akureyrarbær boðar til hverfafundar með bæjarstjóra og bæjarfulltrúum í grunnskólum bæjarins.

Barnahorn á staðnum og grillaðar pylsur að loknum fundi!

Lagt er upp með tvær meginspurningar:

1. Hvað er gott við hverfið þitt?
2. Hvað mætti betur fara?

Næstu fundir verða sem hér segir:
Miðvikudaginn 18. september kl. 17 í Naustaskóla.
Fimmtudaginn 19. september kl. 17 í Oddeyrarskóla. Gengið inn um suðurenda hússins.

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, opnar hvern fund með stuttu ávarpi en síðan brjóta íbúar umrædds hverfis spurningarnar tvær hér að ofan til mergjar.

Bæjarfulltrúar verða í salnum og hafa það hlutverk að skrifa niður þær hugmyndir, umkvartanir, lof og last, sem fram koma í umræðuhópum íbúanna. Megináhersla verður lögð á að samtalið fari fram á forsendum bæjarbúa.

Niðurstöðum fundanna, ábendingum og hugmyndum, verður komið í réttan farveg og á framfæri við stjórnendur sveitarfélagsins og pólitískt kjörna fulltrúa til frekari úrvinnslu.

Á hverjum fundi verður einblínt á nærumhverfið með íbúum hvers hverfis en að sjálfsögðu eru öll velkomin á alla fundina.

Mættu til fundar og taktu þátt í umræðunni um hverfið þitt.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan