Brekkugata lokuð til norðurs frá Oddeyrargötu

Brekkugata er nú lokuð til norðurs frá Oddeyrargötu/Gránufélagsgötu en verið er að leggja lokahönd á endurnýjun gatnamótanna.

Unnið er að því að helluleggja gangbrautina yfir Brekkugötu fyrir neðan Amtsbókasafnið og er vonast til að þeirri vinnu verði lokið fyrir helgi þannig að hægt verði að opna Brekkugötuna aftur fyrir föstudag. Gatan verður hins vegar lokuð a.m.k. í dag og á morgun.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan