Nær allir íbúar Akureyrarbæjar eru ánægðir með sveitarfélagið sem stað til að búa á, samkvæmt niðurstöðum nýrrar þjónustukönnunar Gallup. Yfirleitt eykst ánægja með þjónustu bæjarins eða stendur í stað milli ára, en í þremur flokkum hefur viðhorf til þjónustunnar aldrei mælst jákvæðara.
Gallup kannar árlega viðhorf íbúa gagnvart þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins og voru 20 sveitarfélög mæld að þessu sinni, Akureyrarbær þar á meðal.
Niðurstöður benda til þess að Akureyringar séu einna ánægðastir með umhverfismál sem endurspeglar áherslu sveitarfélagsins að vera leiðandi á því sviði. 84% svarenda sögðust ánægðir með þjónustu í tengslum við sorphirðu og 82% eru ánægðir með gæði umhverfis, en í þeim flokki mælist jákvæður og marktækur munur frá árinu á undan. Einnig mælist jákvæður og marktækur munur á ánægju með skipulagsmál sveitarfélagsins.
79% íbúa eru frekar eða mjög ánægðir með þjónustu Akureyrarbæjar heilt yfir og sama gildir um aðstöðu til íþróttaiðkunar. Ánægja með gæði umhverfis, þjónustu við barnafjölskyldur og þjónustu við fatlað fólk hefur ekki mælst hærri frá því Gallup hóf að mæla þessa þætti. Þá er ánægja með þjónustu Akureyrarbæjar heilt yfir og þjónustu í tengslum við sorphirðu á pari við hæstu gildi frá upphafi.
Á hinn bóginn eru tækifæri til úrbóta á ýmsum sviðum og er afar mikilvægt að fá fram sjónarmið íbúa svo hægt sé að bregðast við og gera enn betur til þess að auka ánægju með þjónustu sveitarfélagsins.
Bæjarráð ræddi um könnunina í gær og er einhugur um að nýta niðurstöður með markvissum hætti. Fagráðum og sviðum bæjarins hefur verið falið að taka niðurstöðurnar til frekari umfjöllunar og úrvinnslu.
„Bæjarráð telur mikilvægt að fá fram viðhorf bæjarbúa til þjónustu sveitarfélagsins og þakkar þátttakendum í könnuninni fyrir mikilvægt framlag. Bæjarráð fagnar því að ánægja bæjarbúa með fjölmarga þætti í þjónustu bæjarfélagsins hafi aukist og leggur áherslu á að niðurstöðurnar séu nýttar með markvissum hætti, eins og áður hefur verið gert, til þess að auka enn frekar ánægju bæjarbúa. Þá vekur bæjarráð athygli á ábendingahnappi á heimasíðu Akureyrarbæjar, þar er ávallt hægt að koma á framfæri ábendingum um hvernig bæta megi þjónustu bæjarfélagsins.“ segir í bókun bæjarráðs.
Hér er hægt að skoða niðurstöður könnunarinnar.