Áramótabrenna á nýjum stað

Ljóst var snemma í haust að færa þyrfti áramótabrennu Akureyringa vegna breyttra aðstæðna og framkvæmda á svæðinu við Réttarhvamm. Ýmsir möguleikar voru skoðaðir en loks ákveðið að brennan verði á auðu og óbyggðu svæði á Jaðri nokkru sunnan við golfskálann.

Á meðfylgjandi loftmynd má sjá brennustæðið, svæði þar sem leggja má bifreiðum og gönguleiðir að brennunni. Kveikt verður í myndarlegri brennu á þessum stað kl. 20.30 á gamlárskvöld.

Þótt færa hafi þurft brennuna þá verður árleg flugeldasýning á gamlárskvöld á sínum stað skammt frá höfuðstöðvum Norðurorku og hefst hún um kl. 21.00. Það er Björgunarsveitin Súlur sem sér um sýninguna en hún er í boði Norðurorku.

Förum varlega með skotelda um áramót og munum að hirða upp eftir okkur flugeldarusl og koma í viðeigandi flokkun. Flugeldarusl má alls ekki fara í blandaðan heimilisúrgang. Sérstökum gámum fyrir það verður komið fyrir við verslanir Bónus í Naustahverfi og Langholti sem og við grenndarstöð norðan við Ráðhús.

Smellið hér til að sjá loftmyndina í fulltri stærð (opnast í nýjum glugga).

Til glöggvunar þá er gönguleiðin frá bílastæðunum vestan Kjarnagötu um 800 metrar að brennunni og frá bílastæðinu við golfskálann að Jaðri um 700 metrar. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan