Útboð á utanhússmálun og múrviðgerðum

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í utanhússmálun og múrviðgerðir á eftirfarandi eignum, um er að ræða aðskilin útboð:

  • Brekkuskóli
  • Giljaskóli
  • Kiðagil

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með mánudeginum 10. mars 2025.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.

Gögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugátt Akureyrarbæjar eftir að búið er að sækja um þau og eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en 26. mars 2025 kl. 11:00 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.