Skipulagslýsing vegna endurskoðunar á aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030

Endurskoðunin nær meðal annars til svæðisins á milli Hagahverfis og Naustaborga sem afmarkað er með …
Endurskoðunin nær meðal annars til svæðisins á milli Hagahverfis og Naustaborga sem afmarkað er með svartri brotinni línu

Akureyrarbær hefur hafið vinnu við endurskoðun á aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030.

Nú liggur fyrir skipulagslýsing þar sem fram kemur hvaða áherslur bæjarstjórn hefur við skipulagsvinnuna, upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu, fyrirhugað skipulagsferli og hvernig kynningu og samráði verður háttað.

Lýsinguna má nálgast hér.

Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér skipulagslýsinguna og senda inn ábendingar, annað hvort bréfleiðis til þjónustu- og skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9 eða í gegnum Skipulagsgátt.

Frestur til að senda inn ábendingar er til 4. desember 2024.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan