Hafnarstræti 73-75: Drög að tillögu að breytingu á deiliskipulagi

Ásýndarteikning af húsaröðinni Hafnarstræti 67-77.
Ásýndarteikning af húsaröðinni Hafnarstræti 67-77.

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kynnir hér með skv. 4.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu á vinnslustigi að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Hafnarstræti 73 og 75.

Skipulagstillagan gerir ráð fyrir að lóðir við Hafnarstræti 73 og 75 sameinist í eina lóð og byggingarreitir innan beggja lóða stækka að þeim lóðarmörkum sem falla út og sameinast í einn byggingarreit. Þá gerir tillagan ráð fyrir að hámarks hæð bygginga á sameinuðum reit verði hækkuð úr 3,5 hæðum í núverandi skipulagi og í 4,5 hæðir.

Tillöguuppdrætti má nálgast hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrar frá 6.desember - 20.desember 2023 og á heimasíðu bæjarins á sama tíma: www.akureyri.isneðst á forsíðu undir: Auglýstar skipulagstillögur.

Ábendingum þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram má skila með tölvupósti á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til þjónustu- og skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, 600 Akureyri.

Drottningarbrautarreitur - Breyting á deiliskipulagi, Hafnarstræti 73 og 75 (pdf)

Frestur til að koma á framfæri ábendingum við tillöguna er til 20. desember 2023.

6. desember 2023
Skipulagsfulltrúi

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan