Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar, óskar eftir tilboðum í undirbúning, hönnun og byggingu 8 deilda leikskóla við Naustagötu í Hagahverfi ásamt frágangi á leiksvæði, leiktækjum, bílastæði og annað á lóð.
Lóð leikskólans er um 9.328 m² að stærð og gert er ráð fyrir 40-50 bílastæðum á lóðinni. Byggja skal einnar hæða byggingu um 1.665 m² brúttó.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með miðvikudeginum 27. mars 2024.
Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil og ekki á að velja umboð fyrir fyrirtæki í innskráningunni heldur persónuna sjálfa.
Gögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugátt Akureyrarbæjar eftir að búið er að sækja um þau og eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.
Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en þann 21. júní 2024 kl. 16:00.