Velferðarráð

1387. fundur 22. maí 2024 kl. 14:00 - 15:15 Glerárgata 26, kálfur, fundarherbergi
Nefndarmenn
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir formaður
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Hólmgeir Karlsson
  • Guðbjörg Anna Björnsdóttir
  • Snæbjörn Ómar Guðjónsson
  • Elsa María Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Tinna Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs
  • Andrea Laufey Hauksdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Andrea Laufey Hauksdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Húsnæðisúrræði fyrir heimilislaust fólk með fjölþættan vanda

Málsnúmer 2023100306Vakta málsnúmer

Lagt fyrir minnisblað dagsett 22. maí 2024 um stöðu í málefnum heimilslausra með fjölþættan vanda.

Bergdís Ösp Bjarkadóttir forstöðumaður og Ísak Herner Konráðsson félagsráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið
Mál lagt fram og verður tekið fyrir áður en sumarfrí hefjast.

2.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2024

Málsnúmer 2024031216Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir rekstur málaflokka velferðarráðs fyrstu fjóra mánuði ársins.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.

3.Fjárhagsaðstoð 2024

Málsnúmer 2024031217Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð á fyrstu fjórum mánuðum ársins.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.

4.Viðhorf og upplifun aðstandenda á skammtíma- og frístundaþjónustu

Málsnúmer 2024050972Vakta málsnúmer

Farið yfir niðurstöður könnunar á viðhorfum og upplifun aðstandenda á skammtíma- og frístundaþjónustu. Niðurstöður þjónustukönnunar gefa til kynna ánægju notenda með þjónustuna.
Málinu vísað áfram til ungmennaráðs og samráðshóps um málefni fatlaðs fólks.

Fundi slitið - kl. 15:15.