Velferðarráð

1357. fundur 11. október 2022 kl. 14:00 - 16:28 Fundarsalur á 4. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir formaður
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson
  • Alfa Dröfn Jóhannsdóttir
  • Hermann Ingi Arason
  • Elsa María Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Málfríður Stefanía Þórðardóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fátækt - sárafátækt á Akureyri

Málsnúmer 2022100252Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 11. október 2022 um fátækt/sárafátækt.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu sat fundinn undir þessum lið og kynnti málið.
Velferðarráð þakkar fyrir kynninguna og ákveður að taka málið upp að nýju eftir umræðu innan annarra nefnda.

2.Rammi að samkomulagi um samræmda móttöku flóttafólks

Málsnúmer 2022081254Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um móttöku flóttfólks á Akureyri og stöðu samningaviðræðna við ríkið um móttöku þeirra.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu sat fundinn undir þessum lið og kynnti málið.
Velferðarráð þakkar kynninguna og felur Önnu Marit forstöðumanni félagsþjónustu að vinna málið áfram.

3.Fjárhagsaðstoð 2022

Málsnúmer 2022041999Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð eftir fyrstu átta mánuði ársins.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu sat fundinn undir þessum lið.

4.Reglur velferðarsviðs um notendasamninga

Málsnúmer 2022090995Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að nýjum reglum um notendasamninga.

Halldóra Kristín Hauksdóttir lögfræðingur og Hlynur Már Erlingsson forstöðumaður stuðningsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð vísar drögum að reglum um notendasamninga til öldungaráðs, samráðshóps um málefni fatlaðs fólks auk Hörgársveitar, Grýtubakkahrepps, Eyjafjaðrarsveitar og Svalbarðsstrandarhrepps til umsagnar.

5.Gjaldskrá velferðarsviðs árið 2023

Málsnúmer 2022090639Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breytingu á gjaldskrá velferðarsviðs fyrir 2023. Lagt er til að almennt hækki gjaldskráin um 10%. Um er að ræða hækkun í félagslegri heimaþjónustu, heimsendum mat og matarkostnaði í skammtímaþjónustu.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.

Velferðarráð frestar málinu.

Alfa Jóhannsdóttir B-lista leggur fram eftirfarandi bókun:

Þegar ákvarðanir eru teknar um gjaldskrárhækkanir þá er mikilvægt að huga að eðli þjónustunnar og hvaða hópa við viljum sérstaklega vernda. Væri eðlilegast að hafa til hliðsjónar þær forsendur sem birtast í minnisblaði Sambands íslenskra sveitarfélaga til sveitarstjórna dagsett 23. ágúst 2022 þegar ákvörðun er tekin um hæstu mögulega hækkun og miða við að hún sé ekki meiri en 7,5%.

Karl Liljendal Hólmgeirsson M-lista leggur fram eftirfarandi bókun:

Óskað er eftir að fresta ákvörðun um hækkun verðs á matarskammti í heimsendingu. Í stefnu Miðflokksins er tekið skýrt fram að lækka skuli kostnað við heimsendingu á mat. Í ljósi þess þá óskar undirritaður eftir að fresta þessum lið gjaldskrárhækkana þangað til frekari rannsókn sviðsstjóra- og starfsmanna velferðarráðs á matarkostnaði samanborið við önnur sveitarfélög kemur í ljós.

6.NPA - tímagjald 2023

Málsnúmer 2022090640Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 11. október 2022 þar sem lögð er fram tillaga að hækkun tímagjalds í Notendastýrðri persónulegri aðstoð (NPA) fyrir árið 2023.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti hækkun á tímagjaldi vegna ársins 2023.

7.Velferðarráð - umsókn í framkvæmdasjóð, bifreiðar

Málsnúmer 2022090806Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 11. október 2022 þar sem óskað er eftir samþykki velferðarráðs um kaup á bifreiðum fyrir stoðþjónustu velferðarsviðs.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir beiðnina fyrir sitt leyti og vísar málinu áfram til umhverfis- og mannvirkjaráðs.

8.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2022

Málsnúmer 2022041998Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstaryfirlit velferðarsviðs eftir fyrstu átta mánuði ársins.

9.Velferðarráð - málefni fatlaðs fólks - úttekt 2021

Málsnúmer 2021023280Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað Guðrúnar Guðmundsdóttur settum þjónustustjóra og Karólínu Gunnarsdóttur settum sviðsstjóra dagsett 11. október 2022 um stöðumat vegna húsnæðismála í málaflokki fatlaðs fólks.

Guðrún Guðmundsdóttir settur þjónustustjóri sat fundinn undir þessum lið.

10.Þjónustukjarnar - fyrirspurn til velferðarráðs

Málsnúmer 2022090796Vakta málsnúmer

Fyrirspurn frá Elínu Lýðsdóttur varðandi stöðu á uppbyggingu þjónustukjarna fyrir fatlaða.

Guðrún Guðmundsdóttir settur þjónuststjóri sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð felur Karólínu Gunnarsdóttur settum sviðsstjóra að svara bréfi Elínar fyrir hönd velferðarráðs.

11.Fjölsmiðjan á Akureyri - beiðni um endurnýjun rekstrarsamnings 2022

Málsnúmer 2022051712Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Fjölsmiðjunni, beiðni um aukafjármagn til að tryggja reksturinn út árið 2022.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að styrkja Fjölsmiðjuna um umbeðna upphæð.

12.Beiðni um stuðning við starfsemi Frú Ragnheiðar

Málsnúmer 2022090772Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dagsett 16. september 2022 frá Ingibjörgu Halldórsdóttur f.h. Eyjafjarðardeildar Rauða krossins þar sem óskað er eftir stuðningi við starfsemi Frú Ragnheiðar á Akureyri.

Erindinu er vísað til velferðaráðs frá bæjarráði til afgreiðslu.
Umsókn um styrk til velferðarráðs frestað með vísan til auglýsingar sem mun birtast í Dagskránni 12. október þar sem auglýst verður eftir styrkumsóknum.

13.Grófin - húsnæðisvandi og fjármögnun

Málsnúmer 2022090642Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Grófarinnar - geðræktar um styrk vegna starfseminnar.
Umsókn um styrk til velferðarráðs frestað með vísan til auglýsingar sem mun birtast í Dagskránni 12. október þar sem auglýst verður eftir styrkumsóknum.

Fundi slitið - kl. 16:28.