Umhverfis- og mannvirkjaráð

168. fundur 03. september 2024 kl. 08:15 - 12:05 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir formaður
  • Einar Þór Gunnlaugsson
  • Þórhallur Harðarson
  • Ingimar Eydal
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Einar Þór Gunnlaugsson M-lista sat fundinn í forföllum Bjarneyjar Sigurðardóttur.

1.Umferðaröryggisáætlun

Málsnúmer 2024060858Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað varðandi opnun tilboða í verðfyrirspurn um gerð umferðaröryggisáætlunar fyrir Akureyrarbæ. Fimm tilboð bárust.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti að ganga til samninga við lægstbjóðanda EFLU ehf. skv. tilboði þeirra að upphæð kr. 5.952.000 um gerð umferðaröryggisáætlunar fyrir Akureyrarbæ.

2.Glerárgil - Zip lína samningur við rekstraraðila

Málsnúmer 2022060950Vakta málsnúmer

Lagt fram samkomulag um rekstur fluglínubrautar (Zip-line) í Glerárgili. Tekið fyrir framlengingarákvæði samkomulagsins.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að nýta framlengingarákvæði samningsins og að framlengja hann um 2 ár eða til 30. september 2026.

Fundi slitið - kl. 12:05.