Umhverfis- og mannvirkjaráð

122. fundur 16. ágúst 2022 kl. 08:15 - 10:15 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Inga Dís Sigurðardóttir
  • Hildur Brynjarsdóttir
  • Gunnar Már Gunnarsson
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Unnar Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Georg Fannar Haraldsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Georg Fannar Haraldsson Verkefnastjóri á rekstrardeild
Dagskrá
Hildur Brynjarsdóttir D-lista sat fundinn í forföllum Þórhalls Harðarsonar.
Unnar Jónsson S-lista sat fundinn í forföllum Sindra Kristjánssonar.

1.Umhverfis og mannvirkjasvið - kynningar

Málsnúmer 2022060913Vakta málsnúmer

Kynning á umhverfismálum og sorphirðu.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.

2.Óshólmanefnd 2022 - 2026

Málsnúmer 2022080342Vakta málsnúmer

Skipun fulltrúa í óshólmanefnd.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð tilnefnir Hólmgeir Karlsson og Ólaf Kjartansson í óshólmanefnd.

3.Fjárhagsáætlun UMSA 2023

Málsnúmer 2022080337Vakta málsnúmer

Vinnuferli fjárhagsáætlunar og tímalína fyrir umhverfis- og mannvirkjasvið.

4.Félagssvæði KA - gervigrasvellir

Málsnúmer 2021120734Vakta málsnúmer

Lagt fram opnunarblað dagsett 28. júlí 2022 varðandi opnun tilboða í jarðvegsskipti og jöfnun undir keppnisvöll og stúku á félagssvæði KA en eitt tilboð barst.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir tilboð G. Hjálmarssonar hf. að upphæð kr. 112.328.900.

5.GLSK - Glerárskóli - endurbætur A-álmu

Málsnúmer 2022020337Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. ágúst 2022 varðandi opnun tilboða á endurbótum á A-álmu og viðbyggingu í Glerárskóla á Akureyri en tvö tilboð bárust.

Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.
Tréverk ehf. kr. 757.383.171.

ÁK smíði ehf. kr. 914.397.059.


Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir tilboð Tréverks ehf. Heildarkostnaður við verkið er áætlaður um 900 milljónir og skiptist hann á 3 ár. Vísað til bæjarráðs til staðfestingar.

6.Ljósleiðari til Hríseyjar

Málsnúmer 2021023130Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. ágúst 2022 varðandi þörf á stálhlíf á ljósleiðarann milli Árskógssands og Hríseyjar.
Tilboð barst frá Sjótækni ehf. kr. 6.405.000 án VSK eða kr. 7.942.200 með VSK.


Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir verkefnið fyrir sitt leyti og óskar eftir viðauka til bæjarráðs að fjárhæð 8 milljónir kr.

7.Þróunarleiðtogar skv. mannréttindastefnu Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2022060687Vakta málsnúmer

Lögð fram mannréttindastefna Akureyrarbæjar 2022-2023 þar sem meðal annars er gert ráð fyrir að ráð bæjarins skipi þróunarleiðtoga sem verði málsvarar kynjasamþættingar og mannréttinda og hafi innsýn og þekkingu á mannréttindum.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að Jón Hjaltason verði tilnefndur sem þróunarleiðtogi ráðsins.

Fundi slitið - kl. 10:15.