Umhverfis- og mannvirkjaráð

31. fundur 27. apríl 2018 kl. 08:15 - 11:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
Dagskrá
Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista mætti í forföllum Hermanns Inga Arasonar áheyrnarfulltrúa.

1.Steinefni fyrir malbik - útboð 2018

Málsnúmer 2018040274Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn dagsett 24. apríl 2018 vegna opnunar tilboða í útboði á steinefnum fyrir malbik fyrir árin 2018-2020.

Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda GV Gröfur ehf.

2.Slökkvilið Akureyrar - beiðni um launað námsleyfi fyrir starfsmenn

Málsnúmer 2018040280Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá slökkviliðsstjóra dagsett 25. apríl 2018 um að fjórum starfsmönnum slökkviliðsins verði veitt launað námsleyfi til menntunar í bráðatækni.

Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til kjarasamninganefndar.

3.Samningur um millistofnanaflutninga við Sjúkrahúsið á Akureyri

Málsnúmer 2018040281Vakta málsnúmer

Rætt um stöðu mála vegna samninga við SAk um millistofnanaflutninga.

Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að frá og með 1. maí 2018 verði rukkað fyrir millistofnanaflutninga samkvæmt gjaldskrá Slökkviliðs Akureyrar.

4.Umhverfis- og mannvirkjasvið - stjórnsýslubreytingar

Málsnúmer 2018040126Vakta málsnúmer

Tekin fyrir að nýju kynning á stöðumati vegna stjórnsýslubreytinganna sem tóku gildi 1. janúar 2017, dagsett 15. mars 2018. Stöðumatið var unnið af RR Ráðgjöf ehf.

5.Umhverfis- og mannvirkjasvið - merki sviðsins

Málsnúmer 2018040273Vakta málsnúmer

Rætt um merki umhverfis- og mannvirkjasviðs sem er liður í samræmingu á útliti innan sviðsins.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir merki umhverfis- og mannvirkjasviðs.

6.Umhverfis- og mannvirkjasvið - beiðni um kaup á þjónustubifreið

Málsnúmer 2018040284Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 25. apríl 2018 vegna beiðni um að kaupa nýja þjónustubifreið til afnota fyrir byggingastjóra viðhalds að upphæð 3.500.000 kr.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kaupin á bifreiðinni.

7.Stöðuskýrslur rekstrar 2017

Málsnúmer 2017020164Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla fyrir fjárfestingar umhverfis- og mannvirkjasviðs 2017 dagsett 25. apríl 2018.

8.Íþróttamannvirki - endurnýjun skor- og tímaklukkna

Málsnúmer 2018040263Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá frístundaráði um endurnýjun skor- og tímaklukkubúnaðar í Íþróttahöllinni að upphæð kr. 5.000.000, íþróttahúsi Síðuskóla að upphæð kr. 5.000.000 og íþróttahúsi Lundarskóla/KA heimilinu að upphæð kr. 5.000.000. Alls er óskað eftir 15 milljónum króna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að veita fjármagni að upphæð kr. 5.000.000 til kaupa á skorklukku í Íþróttahöllina.

9.Menningarfélag Akureyrar - beiðni um kaup á búnaði

Málsnúmer 2016110028Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá stjórn Akureyrarstofu um kaup á búnaði fyrir Hof menningarhús og Samkomuhúsið að upphæð 18.214.980 kr., samkvæmt meðfylgjandi lista, með möguleika á því að skipta kostnaði á tvö ár.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að veita fjármagni að upphæð kr. 9.000.000 til búnaðarkaupa samkvæmt framlögðum gögnum.

10.Skautafélag Akureyrar - styrkbeiðni vegna búnaðarkaupa

Málsnúmer 2018040114Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá frístundaráði um kaup á skorklukku fyrir Skautahöllina að upphæð 2.400.000 kr.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að veita fjármagni að upphæð kr. 2.400.000 til kaupa á skorklukku samkvæmt framlögðum gögnum.

11.Ráðhús - breytingar á 4. hæð

Málsnúmer 2018010435Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað vegna fyrirhugaðra framkvæmda, dagsett 25. apríl 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar tillögunum til umræðu í bæjarráði.

12.Lausaganga katta

Málsnúmer 2018040196Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi Jóhanns Gunnarssonar sem kom í viðtalstíma bæjarfulltrúa. Hann óskar eftir breytingum á kattahaldi á Akureyri. Vill að lausaganga katta verði bönnuð og átak verði gert í skráningu katta.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar ábendinguna. Í gildi eru samþykktir um hunda- og kattahald og ekki stendur til að gera breytingar á þeim að svo stöddu. Ráðið leggur til að reglulega verði birtar auglýsingar til upplýsingar um þær samþykktir sem eru í gildi.

13.Nýju bílastæðin við Gránufélagsgötu verði tveggja tíma stæði

Málsnúmer 2018040193Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Ragnari Sverrissyni sem kom í viðtalstíma bæjarfulltrúa. Hann kom sem formaður Kaupmannasamtakanna og óskaði eftir því að nýja stæðið við Gránufélagsgötu verði skilgreint sem fyrst sem tveggja tíma stæði. Benti á að það eru bílastæði við íþróttavöllinn sem geta nýst starfsmönnum miðbæjarins en að þetta stæði ætti að vera fyrir viðskiptavini. Teikning fylgir málinu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar erindinu til skipulagsráðs.

14.Hreinsun gatna - þvottur á götum og stígum

Málsnúmer 2018040277Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 25. apríl 2018.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í að þvo götur í eigu bæjarins og óskar eftir viðauka til bæjarráðs að upphæð kr. 8.500.000.

15.Loftgæði í Akureyrarbæ

Málsnúmer 2018040278Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir 3. liður í fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis eystra sem haldinn var fimmtudaginn 7. september 2017. Þar er farið fram á aðgerðaáætlun til lágmörkunar á að svifryk fari yfir heilsuverndarmörk í bænum.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð lítur svo á að umhverfis- og samgöngustefnan, sem er leiðarljós allrar vinnu sem snýr að umhverfis- og samgöngumálum sé í leiðinni aðgerðaáætlun þar sem skýrt kemur fram í henni til hvaða aðgerða skal grípa til þess að ná tilskyldum markmiðum og með stöðugu aðhaldi/eftirfylgni sé þeim haldið. Einnig samþykkti ráðið á fundinum að fara í að þvo götur bæjarins til að sporna við svifryki.

16.Umhverfisátak Akureyrarbæjar 2018

Málsnúmer 2018040279Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 25. apríl 2018 vegna tiltektar í bæjarlandinu.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að veita fjármagni að upphæð kr. 7.000.000 til verkefnisins og óskar eftir viðauka til bæjarráðs.

17.Lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarkaupstað - endurskoðun

Málsnúmer 2017020113Vakta málsnúmer

Rætt um drög að endurskoðaðri Lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarkaupstað dagsett 5. apríl 2018.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.

18.Listasafn - endurbætur

Málsnúmer 2014010168Vakta málsnúmer

Farið var í skoðunarferð á framkvæmdastað.

Fundi slitið - kl. 11:00.