Málsnúmer 2019100377Vakta málsnúmer
Erindi dagsett 22. október 2019 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd B.E. Húsbygginga ehf., kt. 490398-2529, sækir um að fá að leggja fram breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð nr. 1 við Gudmannshaga. Eru helstu breytingar eftirfarandi:
- að heimilt verði að byggja kjallara fyrir bílgeymslu og geymslur fyrir íbúðir,
- að heimilt verði að byggja 4. hæða hús í stað 3. hæða
- að hámarks vegghæð húss fari úr 10,3 m í 11,7 m, sem jafnframt verður hámarkshæð húss (flatt þak)
- að nýtingarhlutfall húss verði 1,25 í stað 1,0 og að nýtingarhlutfall bílgeymslu verði 0,45
- að byggingarreit við götu verði hliðrað um 0,3 m vegna bílgeymslu
- að bílastæðum við götu verði hliðrað vegna aðkomu að bílageymslu auk þess að stæðum verði fjölgað um 5
- að aðkomu að leiksvæði verði breytt
- að svalir fái að ná 2 m út fyrir byggingarreit
- að stigahús og svalagangar megi fara allt að 0,6 m út fyrir byggingarreit.
Meðfylgjandi er samþykki lóðarhafa Gudmannshaga 2 og Kristjánshaga 6 fyrir ofangreindum breytingum.
Formaður ráðsins bar upp tillögu um að liður 9 í útsendri dagskrá yrði tekinn út af dagskrá, þar sem umsækjandi dróg umsóknina til baka, og var það samþykkt.