Öldungaráð

42. fundur 18. desember 2024 kl. 13:00 - 15:00 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Hjálmar Pálsson formaður
  • Hildur Brynjarsdóttir
  • Brynjólfur Ingvarsson
  • Hallgrímur Gíslason fulltrúi ebak
  • Úlfhildur Rögnvaldsdóttir fulltrúi ebak
  • Þorgerður Jóna Þorgilsdóttir fulltrúi ebak
  • Eva Björg Guðmundsdóttir fulltrúi hsn
Starfsmenn
  • Birna Guðrún Baldursdóttir forstöðumaður tómstundamála ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Birna Guðrún Baldursdóttir forstöðumaður tómstundamála
Dagskrá

1.Lífsgæðakjarni fyrir eldri borgara

Málsnúmer 2023090027Vakta málsnúmer

Hulda Elma Eysteinsdóttir formaður velferðaráðs og Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra kynntu niðurstöður vinnuhóps um iífsgæðakjarna.
Öldungaráð þakkar fyrir mjög fróðlega yfirferð.

2.Amtsbókasafnið á Akureyri - starfsemi

Málsnúmer 2023040709Vakta málsnúmer

Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður kynnti þjónustu fyrir eldri borgara og ræddi um þjónustu safnsins.
Öldungaráð þakkar Hólmkeli fyrir heimsóknina og ánægjulegt spjall.

3.Hreyfikort

Málsnúmer 2022101039Vakta málsnúmer

Hreyfikort fyrir eldri borgara var til umræðu og afgreiðslu í fræðslu- og lýðheilsuráði svo og bæjarráði í nóvember síðastliðnum. Ákvörðun var síðan tekin í bæjarstjórn Akureyrarbæjar. Allt var þetta gert án aðkomu öldungaráðs sem er ráðgefandi samráðsvettvangur og "virkur þátttakandi í allri stefnumörkun málaflokksins" eins og stendur í samþykkt ráðsins sem var samþykkt af bæjarstjórn 21. nóvember 2023.
Öldungaráð átelur þessi vinnubrögð harðlega og óskar þess að þau verði ekki endurtekin. Til að tryggja það telur ráðið eðlilegast að fulltrúi frá ráðinu sitji fundi nefnda og ráða hjá bænum þegar málefni eldri borgara eru þar til umræðu og afgreiðslu.

Fundi slitið - kl. 15:00.