Oddeyrarskáli - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 2024100020

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 987. fundur - 04.10.2024

Erindi dagsett 30. september 2024 þar sem Stefán Níels Guðmundsson f.h. Eimskips Ísland ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir tjaldskemmu á lóð þess við Strandgötu.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

Skipulagsráð - 433. fundur - 23.10.2024

Erindi dagsett 30. september 2024 þar sem Stefán Níels Guðmundsson fh. Eimskips Ísland ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir tjaldskemmu á lóð þess við Strandgötu.
Skipulagsráð tekur jákvætt í erindið en telur að í ljósi umfangs mannvirkisins þurfi að breyta deiliskipulagi svæðisins og í framhaldi sækja um byggingarleyfi. Er afgreiðslu frestað og skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram í samráði við umsækjanda.