Lækjargata 13 - fyrirspurn varðandi skipulagsmál

Málsnúmer 2024061055

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 426. fundur - 26.06.2024

Erindi dagsett 15. júní 2024 þar sem að Gabríel Snær Völuson óskar eftir upplýsingum um hvort lóðin Lækjargata 13 sé laus eða hvenær Akureyrarbær hafi hugsað sér að bjóða hana út og hvað verðið á henni verði þegar að því kemur.
Skipulagsráð getur ekki orðið við erindinu þar sem lóðin er ekki laus til úthlutunar.