Brekkugata 9 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024060202

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 425. fundur - 12.06.2024

Erindi dagsett 3. júní 2024 þar sem Þórir Guðmundsson f.h. Gunnars Magnúsar Arnþórssonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 9 við Brekkugötu í Hrísey. Innkomin gögn eftir Gunnar Magnús Arnþórsson.
Skipulagsráð samþykkir byggingaráformin til samræmis við erindið með fyrirvara um grenndarkynningu. Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Brekkugötu 7, Hólabrautar 7, 9 og 18 ásamt lóðarhöfum Norðurvegar 15 og 17.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 978. fundur - 31.07.2024

Erindi dagsett 3. júní 2024 þar sem Þórir Guðmundsson f.h. Gunnars Magnúsar Arnþórssonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 9 við Brekkugötu í Hrísey. Innkomin gögn eftir Gunnar Magnús Arnþórsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.